Skógrækt í Álfadal, Álfheimum og Skógarbrekkum í Grímsnes- og Grafningshreppi

Skógálfar tilkynna til Skipulagsstofnunar fyrirhugaða skógrækt sem kann að vera matsskyld skv. 19. gr. laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Tilkynnt er skógrækt á þremur spildum sem er viðbót við skógrækt sem þegar er hafin. Spildurnar þrjár sem tilkynning þessi tekur til eru samtals 230 ha að stærð en fyrir er skógrækt á landspildum sem eru samtals 386,5 ha. Framkvæmdir á spildunum eru unnar í samræmi við fyrirmæli verkefnisins Skógarkolefnis. Um er að ræða heiðarland sem áður var hluti jarðanna Neðra-Apavatns og Þóroddsstaða.
Nánar á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is/issues/2024/14

