Fara beint í efni
Skógálfar
ÍslenskaEnglish
Hafa samband
Hafa samband

Ásmundur Skeggjason · Eigandias@hofdi.is895 3000

ÍslenskaEnglish
Allar fréttir

Kolefnismarkaðir

Kolefnismarkaðir – áskoranir og tækifæri í íslensku samhengi

Skýrsla starfshóps á vegum stjórnvalda um kolefnismarkaði kom nýlega út og er hægt að nálgast hana hérPDF.

Nokkur atriði í skýrslunni sem við bendum á:

  1. Einingar í bið úr vottuðum verkefnum eins og okkar eru strax fullgildar í bókhald fyrirtækja.
  2. Tilmæli eru um að innlendir aðilar kaupi fyrst einingar úr innlendum verkefnum áður en keypt er úr erlendum. Þetta er að okkar mati „heilbrigð skynsemi“.
  3. Að einingar séu skráðar í gagnagrunna hjá þriðja aðila, eins og loftslagsskrá (e. Carbon Registry): Álfabrekka í loftslagsskránni

Það sem kemur fram í þessari skýrslu er í fullu samræmi við okkar verkefni, sem er mjög ánægjulegt, og nánast eins og hluti skýrslunnar sé skrifaður upp eftir þeim.

Forsíða skýrslunnar Kolefnismarkaðir – áskoranir og tækifæri í íslensku samhengi

Skjöl sem fréttin vísar í

Kolefniseiningar

Taktu þátt í að rækta íslenskan skóg.

Kolefniseiningarnar okkar koma úr skógi á okkar eigin landi á Suðurlandi, vottaðar samkvæmt Skógarkolefni og skráðar í International Carbon Registry.

Spyrjast fyrir um einingarVerkefnin í Carbon Registry